Á Film.com: Why The Great Gatsby makes sense in 3-D.

Ég hef lesið Gatsby fjórum eða fimm sinnum. Hún er ein af mínum uppáhalds bókum. Ég er mjög spenntur að sjá hvað Baz Luhrmann gerir við söguna. Hún getur allavega ekki verið verri en G, sem reyndi að hip-hop-nútímavæða söguna og mistókst hrapallega.

Ætli ég verði ekki að lesa Gatsby í sumar, líka. Segi sjálfum mér að það sé til að hita upp fyrir myndina. Mér leiðist aldrei að hafa ástæður til að lesa þessa bók.