Höfundur: Kristján Atli



  • Archive
  • RSS
  • Mobile

May
04

Sigurjón.CO: Hressandi LÍN brandari

gudjonsson:

Hérna kemur einn hress brandari. Ég kíkti inn á heimasíðu LÍN í kvöld, eitthvað sem hef ekki gert síðan ég útskrifaðist 2010 vegna að ég nenni engan veginn að hugsa um þetta. Ég fann samt fyrir smá pressu að fara að tékka á þessu núna vegna þess að ég á að byrja af borga af þessu skrímsli í sumar.

Nema hvað, ég kíki á reiknivélina góðu sem þeir bjóða upp á, set inn allar þær upplýsingar sem beðið er um, og niðurstaðan var þessi:

Fjöldi ára að greiða niður lán: 101

Ég hló og hló og hló. Ég er ennþá að flissa, bara við að skrifa þetta. Geðshræring kannski? Ég veit það ekki, en mér fannst þetta allavega eitt það fyndasta sem ég hef lesið í nokkur ár.

Þetta er ástæðan fyrir því að ég fer ekki aftur í skóla. Ég útskrifaðist með B.A. gráðu úr HÍ sumarið 2007 og vann eins mikið og ég gat með - við erum að tala um næturvaktir alla daga og skólinn á daginn - til að geta klárað gráðuna án þess að taka mér námslán. Það var erfitt en þess virði.

Ég gæti það aldrei í dag. Ekki með húsnæðislán á bakinu. Eina leiðin til að fara í frekara nám væru námslánin og þau mun ég aldrei nokkurn tímann þiggja. Menntun er frábær en hún er ekki þess virði ef hún hlekkjar mann við lánadrottna út ævina.

Ég vorkenni ungu fólki á Íslandi í dag.

Reblogged from

1 year ago

  • 1 note

Notes

Permalink

1 of 1 Pages

  • Previous post
  • Next post

© Copyright 2010. - kristján atli. All Rights Reserved.
Nova Theme created by Style Hatch

  • Archive
  • RSS feed
  • Mobile